Í áfanganum er farið yfir hvernig skráning lyfseðla fer fram og eru helstu tölvuforrit sem notuð eru í apótekum kynnt. Greiðslukerfi Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) er kynnt og farið er yfir sérréttindi sjúklinga vegna lyfjaskírteina. Farið er í úrvinnslu og utanumhald lyseðla, samskipti við SÍ og frágang frumgagna. Ferli lyfjaskömmtunar er kynnt. Farið er yfir réttindi sjúklinga til kaupa á hjálpartækjum í apóteki og hvernig afgreiðsla þeirra fer fram. Farið er í hvernig upplýsingum er aflað á netinu og heimasíður SÍ, lyfjastofnunar og lyfjagreiðslunefndar kynntar. Einnig er kynnt hvernig lesa á úr biðlistum lyfjaheildsala.
LYLÖ1LR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ferli lyfseðla
reglugerðum um ávísun lyfja og skráningu lyfseðla
meðferð og frágangi gagna og mikilvægi þess að sýna nákvæmni við meðhöndlun þeirra
samskiptum apóteka við SÍ
greiðslukerfi SÍ og reglum um útgáfu lyfjaskírteina
hvernig afgreiðsla hjálpartækja fer fram
ferli lyfjaskömmtunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita upplýsinga á netinu
skrá lyfseðla með nákvæmum hætti og samkvæmt reglugerðum í tölvukerfi apóteka
meðhöndla og sjá um frágang frumgagna
veita upplýsingar um greiðslukerfi SÍ og hvaða skilyrði sjúklingur þarf að uppfylla til þess að eiga rétt á lyfjaskírteini
afgreiða hjálpartæki og veita upplýsingar um réttindi sjúklinga
fylgja eftir ferli lyfjaskömmtunar fyrir hönd sjúklinga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa úr þeim gögnum sem tölvukerfin halda utan um svo sem sendingar til og frá SÍ
bera ábyrgð á samskiptum apóteksins við SÍ vegna greiðslu lyfseðla
veita almennar upplýsingar til sjúklinga og nýta til þess heimasíður SÍ, Lyfjastofnunar, Lyfjagreiðslunefndar og lyfjaheildsala
Áfanginn er símatsáfangi. Verkefnavinna og hlutapróf.