Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1366020597.24

    Lyfhrifafræði 3
    LYHR3TH05(FÁ)
    2
    lyfhrifafræði
    hrörnunarsjúkdómalyf, tauga-og geðlyf, verkjalyf
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er farið yfir helstu lyf sem notuð eru við verkjum, geðsjúkdómum, Alzheimer, Parkinsons og MS. Fjallað er um lyf og lyfjaflokka, verkun lyfjanna, aukaverkanir, milliverkanir, skammtastærðir o.fl.
    Æskilegir undanfarar: LÍOL2IL05 og SJÚK2GH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • áhrifum helstu verkjalyfja, tauga- og geðlyfja, Alzheimerslyfja, Parkinsonslyfja og MS-lyfja
    • nöfnum ofangreindra lyfja, sérheitum og samheitum
    • helstu skammtastærðum ofangreindra lyfja
    • helstu auka- og milliverkunum ofangreindra lyfja
    • hvernig á að leita upplýsinga um ofangreind lyf
    • áhrifum ofangreindra lyfja á líkamann og sjúkdómum sem lyfin eru notuð við
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leita að upplýsingum um ofangreind lyf á netinu
    • sýna sjúklingum hvernig á að nota hin ýmsu lyfjaform ofangreindra lyfja
    • miðla algengum upplýsinum um ofangreind lyf til sjúklinga, þar sem við á
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra verkun ofangreindra lyfja fyrir sjúklingum
    • veita fræðslu og ráðgjöf um rétta og hagkvæma notkun ofangreindra lyfja
    • útskýra tengsl milli verkunar ofangreindra lyfja og áhrifa þeirra á líkamann
    Lokapróf, hlutapróf, verkefni