Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1365817645.49

    Lyfhrifafræði 1
    LYHR3MÖ05(FÁ)
    4
    lyfhrifafræði
    augn-og eyrnalyf, húðlyf, meltingarfæralyf, öndunarfæralyf
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er farið yfir helstu lyf sem notuð eru við meltingarfærasjúkdómum, öndunarfærasjúkdómum, augn- og eyrnasjúkdómum og húðsjúkdómum. Fjallað er um lyf og lyfjaflokka, verkun lyfjanna, aukaverkanir, milliverkanir, skammtastærðir o.fl.
    Æskilegir undanfarar: LÍOL2IL05 og SJÚK2GH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • áhrifum helstu meltingarfæralyfja, öndunarfæralyfja, augn- og eyrnalyfja og húðlyfja
    • nöfnum ofangreindra lyfja, sérheitum og samheitum
    • helstu skammtastærðum ofangreindra lyfja
    • helstu auka- og milliverkunum ofangreindra lyfja
    • hvernig á að leita upplýsinga um ofangreind lyf
    • áhrifum ofangreindra lyfja á líkamann og sjúkdómum sem þau eru notuð við
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leita að upplýsingum um ofangreind lyf á netinu
    • sýna sjúklingum hvernig á að nota hin ýmsu form ofangreindra lyfja
    • miðla algengum upplýsingum um ofangreind lyf til sjúklinga, þar sem við á
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra verkun ofangreindra lyfja fyrir sjúklingum
    • veita fræðslu og ráðgjöf um rétta og hagkvæma notkun ofangreindra lyfja
    • útskýra tengsl milli verkunar ofangreindra lyfja og áhrifa þeirra á líkamann
    Lokapróf, hlutapróf, verkefni