Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1365760281.64

    Hjúkrunar-og sjúkragögn 3
    HOSG2ÞS04(FÁ)
    3
    Hjúkrunar-og sjúkragögn
    mælingar, mælitæki, sykursýki, þvagstrimlar
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Í áfanganum er farið í ýmsar vörur og hjálpartæki sem sjúklingar sækja til apóteka, einkum sykursýkissjúklingar. Farið er í þvagstrimla og ýmis próf sem hægt er að kaupa og mælingar sem hægt er að láta gera í apótekum. Farið er í greiðsluþátttöku SÍ á ýmsum vörum. Að lokum er fjallað um skipskistur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vörum sem sykursýkissjúklingar o.fl. sjúklingahópar sækja til apóteka
    • þvagstrimlum sem skima fyrir ýmsum sjúkdómum
    • uppbyggingu þvagstrimla og töku þvagprufa
    • blóðsykursmælum og -strimlum
    • insúlínpennum og nálum
    • ýmsum prófum sem sjúklingar geta keypt í apótekum
    • mælingum sem sjúklingar geta látið framkvæma í apótekum
    • greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í prófefnum, mælitækjum o.fl.
    • reglugerð um skipskistur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa af þvagprufum
    • mæla blóðsykur með blóðsykursmælum
    • leiðbeina sjúklingum í sambandi við val á þvagstrimlum
    • handleika insúlínpenna og nálar
    • framkvæma ýmiss próf sem standa sjúklingum til boða í apótekum
    • reikna út hlut sjúklings í kaupum á ýmsum prófefnum, mælitækjum o.fl.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla upplýsingum til sjúklingahópa sem leita aðstoðar í apótekum varðandi ýmis mælitæki og mælingar
    • fylla á skipskistur
    Verkefni, hlutapróf og lokapróf. Tekið er sérstakt lokapróf í skipskistum