Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1365690846.93

    Líffæra og lífeðlisfræði B
    LÍOL2IL05
    1
    líffæra og lífeðlisfræði
    innri líffæri
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Markmið áfangans er að nemendur öðlist þá grundvallarþekkingu og skilning á byggingu og starfsemi mannslíkamans, sem er nauðsynleg fyrir frekara nám og störf á heilbrigðissviði. Farið er í byggingu og starfsemi hringrásarkerfis: blóð, hjarta, blóðæðar, blóðþrýstingur og stjórnun hans; vessakerfis: vessalíffæri, varnir, ónæmi; öndunarkerfis: öndunarvegur, lungu, öndunarhreyfingar, loftskipti, stjórnun öndunar; meltingarkerfis: aðal- og aukalíffæri meltingar, melting og stjórnun hennar; þvagkerfis: nýru, þvagblaðra, þvagpípur, þvagrás, þvagmyndun; æxlunarkerfis: innri og ytri kynfæri, myndun kynfrumna, kynhormón, tíðahringur. Auk þess er farið í grundvallaratriði fósturþroska. Fjallað er um hvernig starfsemi allra líffærakerfanna tengist innbyrðis og hvernig hún viðheldur innri stöðugleika líkamans. Öll líffærafræðileg umfjöllun gengur út frá latneskri nafngiftafræði.
    LÍOL2SS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ytri og innri gerð líffæra þeirra líffærakerfa sem fjallað er um og latnesk heiti þar að lútandi
    • starfsemi þeirra líffærakerfa sem farið er yfir
    • hvernig starfsemi líffærakerfanna tengist innbyrðis og viðheldur innri stöðugleika líkamans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota latnesk heiti við að lýsa afstöðu líffæra og líffærahluta
    • tengja byggingu líffæra- og líffærahluta við starfsemi þeirra
    • tengja í heild starfsemi líffærakerfanna
    • rekja og útskýra flókin lífeðlisfræðileg ferli
    • dýpka þekkingu sína í faginu með fjölbreyttri heimildavinnu
    • vinna sjálfstæð kynningarverkefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta þekkingu sína og leikni í líffæra- og lífeðlisfræði í öðrum námsgreinum og starfi
    • greina á milli heilbrigðrar líkamsstarfsemi og frávika frá henni
    • taka þátt í faglegri umræðu er varðar líffæra- og lífeðlisfræði
    • meta trúverðugleika töfralausna um bætta heilsu
    • bera ábyrgð á eigin heilsu
    Hlutapróf, verkefni og lokapróf